Hann sagði sig úr stjórn ungliðahreyfingarinnar í október í kjölfar þess að fjallað var um rasískar yfirlýsingar hans. Fjallað var um ummæli hans í hlaðvarpinu Bjórkastinu þar sem hann talaði um mikilvægi genamengis í aðlögunarhæfni aðfluttra.
Á samfélagsmiðlum hefur hann margoft talað fyrir fjöldabrottvísunum á aðfluttu fólki frá Miðausturlöndum og víðar að. Undanfarið hafa málefni hinsegin fólks verið honum hugleikin en hann hefur birt fleiri færslur þar sem hann kallar regnbogafánann „alnæmisfánann“.
Hér fyrir neðan má sjá ræðu Sverris í heild sinni.
Í kjölfar þess að Sverrir sagði sig úr stjórn Ungra Miðflokksmanna sagði Anton Sveinn McKee, formaður hreyfingarinnar, að Sverrir talaði ekki fyrir hönd Ungra Miðflokksmanna. Allir séu velkomnir í starfið og beri sjálfir ábyrgð á eigin orðum.
Í ræðu sinni að þessu sinni fjallaði hann einnig um málefni hinsegin fólks og mikilvægi þess að Miðflokksmenn gæfu ekki eftir. Barátta þeirra væri háð í þágu barna og að landið væri „fokkt“ næði Miðflokkurinn ekki áhrifum.
Hann lauk tölu sinni við mikil fagnaðarlæti, faðmlög og húrrahróp. Haft var samband við Sverri Helgason og Anton Svein McKee við vinnslu þessarar fréttar en hvorugur þeirra vildi tjá sig.