Kynnisferðir græddu hálfan milljarð á rekstri strætisvagna
Rekstartekjur Almenningsvagna Kynnisferða hækkuðu vegna vísitölutengingar í samningi við Strætó bs. Móðurfélag Icelandia ferðaþjónusturisans greiðir 300 milljónir í arð til eigenda sinna, Engeyjarættarinnar og lífeyrissjóða. Flybus nú án samkeppni í rútuferðum til og frá Keflavíkurflugvelli.
Kynnisferðir, sem reka ýmsa ferðaþjónustu undir merkinu Icelandia, högnuðust um 915,5 milljónir króna í fyrra samkvæmt ársreikningi 2025. Eignir samstæðunnar námu um 20 milljörðum króna og eigið fé tæpum 8 milljörðum.
Dótturfélög Kynnisferða eru fjölmörg og tengjast flest ferðaþjónustu. Þar á meðal eru Ferðaskrifstofa Icelandia sem rekur Flybus rútuþjónustuna til Keflavíkurflugvallar, en Heimildin fjallaði nýverið um að Flybus væri nú án samkeppni eftir að Airport Direct hætti akstri. Engar ákvarðanir hafa verið teknar hjá innviðaráðuneytinu eða Vegagerðinni um að efla tíðni eða lengja þjónustutíma leiðar 55 hjá Strætó sem fer á milli BSÍ og Leifsstöðvar, þrátt fyrir tillögur starfshóps innviðaráðherra um aðgerðir.
Annað dótturfélag, Almenningsvagnar Kynnisferða, sinnir rekstri strætisvagna í Reykjavík og nágrenni í samræmi við samning við Strætó bs. Dótturfélagið hagnaðist um 565 milljónir króna árið 2025 en aðeins 3,8 milljónir árið áður. „Tekjur félagsins [...] hækka í samræmi við …