Hópur fólks kveikti í sjúkratjöldum fyrir utan sjúkrahús í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í dag. Fólkið mótmælti því að fjölskyldu og vinum ungs manns, sem er talinn hafa látist úr ebóluveirunni, hafi verið meinað að jarða lík hans.
Fólkið kastaði hlutum að sjúkrahúsinu Rwampara, sem er staðsett nálægt borginni Bunia í Ituri-héraði í Kongó, og kveikti í tjöldum sem notuð voru til að einangra smitaða. Þetta segir stjórnmálamaðurinn Luc Malembe Malembe við breska ríkisútvarpið BBC.
Lík ebólufórnarlambs er mjög smitandi og yfirvöld þurfa að tryggja örugga greftrun til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Ebóla hefur orðið meira en 130 manns að bana í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) mælir með „öruggum og virðulegum útförum“ fyrir fórnarlömb ebólu, þar sem þjálfaðir hópar notast við hlífðarbúnað til að meðhöndla lík.
Heilbrigðisstarfsfólk verndað af hernum
Þegar lögregla kom á vettvang skaut hún viðvörunarskotum til að dreifa mannfjöldanum á meðan herinn verndaði heilbrigðisstarfsfólk sjúkrahússins. Heilbrigðisstarfsmaður særðist af völdum grjótkasts mótmælenda áður en lögregla greip inn í, segir starfsmaður sjúkrahússins við fréttaveituna AFP.
Malembe segir tvö tjöld hafa verið brennd til grunna, ásamt líki sem átti að jarða. Sex sjúklingar sem fengu meðferð í tjöldum á lóð sjúkrahússins eiga að hafa flúið í ringulreiðinni. Samkvæmt læknahjálparsamtökunum Alima, sem eru sögð reka tjöldin, var haft uppi á þeim öllum. Þeim sé nú sinnt á sjúkrahúsinu.
Fólk trúi því ekki að veiran sé raunveruleg
Maðurinn sem lést var þekktur í samfélaginu. Vitni sem fréttaveitan Reuters talaði við sögðu hann hafa verið fótboltamann sem hafi spilað með nokkrum liðum á svæðinu.
Jean Claude Mukendi, sem samhæfir öryggisviðbrögð við ebólu í Ituri, segir fólkið sem var í uppnámi yfir því að fjölskylda hans og vinir fengju ekki að grafa hann sjálf ekki skilja „raunveruleika sjúkdómsins“. Móðir mannsins sagði blaðamönnum Reuters að hún teldi son sinn hafa látist úr taugaveiki, ekki ebólu.
Malembe segir fólkið sem réðst að spítalanum ekki trúa því að veiran sé raunveruleg. „Fólk er ekki nægilega vel upplýst eða meðvitað um hvað er að gerast. Fyrir ákveðinn hluta íbúanna, sérstaklega á afskekktum svæðum, er ebóla uppfinning einhverra utanaðkomandi – hún er ekki til,“ hefur BBC eftir Malembe.
„Það trúir því að það séu frjáls félagasamtök og sjúkrahús sem séu að búa þetta til til að græða peninga og það er hörmulegt.“