Krefjast þess að Jasmine verði rekin úr Love Island

Jasmine Gaziza Müller einn af þátttakendum í 13. seríu af bresku raunveruleikaþáttunum Love Island (2026) mætti í lúxusvilluna sem hluti af upprunalega hópnum (OG) og vakti strax mikla athygli fyrir sterkan persónuleika og tísku.
Nú hafa samtökin UK Lawyers for Israel (UKLFI) sent formlegt erindi til Carolyn McCall, forstjóra ITV, framleiðanda raunveruleikaþáttarins Love Island og krafist rannsóknar á Jasmine. Í bréfinu var fullyrt að yfir 60 færslur á Instagram-reikningi Jasmine (allt frá árinu 2020) fælu í sér afneitun á tilvist Ísraels og gætu ýtt undir fjandsamlegheit í garð stuðningsmanna landsins eða breskra gyðinga. Samtökin vöktu sérstaka athygli á myndrænu efni þar sem hún kallaði Ísrael „nýlenduverkefni“ (e. colonial project) og hvatti fólk til að kenna yngri kynslóðinni að landsvæðið héti Palestína en ekki Ísrael.
Breska sjónvarpsstöðin ITV og framleiðendur raunveruleikaþáttarins Love Island hafa hafnað kröfum lögfræðisamtaka um að grípa til aðgerða gegn Jasmine. Samtökin UK Lawyers for Israel (UKLFI) höfðu krafist þess að þátttaka hennar yrði endurskoðuð vegna eldri færslna á samfélagsmiðlum þar sem hún lýsti yfir stuðningi við málstað Palestínu.
Framleiðslufyrirtækið Lifted Entertainment svaraði erindinu fyrir hönd ITV og lýsti því yfir að engar ráðstafanir yrðu gerðar gegn Müller. Í svari fyrirtækisins kom fram að umræddar færslur endurspegluðu persónulegar skoðanir hennar sem settar hefðu verið fram löngu áður en hún hóf þátttöku í þættinum. Þá var áréttað að þátttakendur rækju eigin samfélagsmiðla og að framleiðslan stæðist allar kröfur breska fjölmiðlaeftirlitsins Ofcom.
Málið hefur vakið talsverða athygli í breskum fjölmiðlum og varpað ljósi á vaxandi umræðu um tjáningarfrelsi og bakgrunnsskoðanir þátttakenda í dægurmálaþáttum.