Íslenska lögreglan fékk fyrir um tíu dögum konu framselda til Íslands frá Belgíu vegna rannsóknar á fíkniefnasmygli sem upp kom í júní. Þá var tæplega 70 kílóum af fíkniefnum smyglað til landsins í húsbíl með Norrænu.
Erlendur maður á sextugsaldri, sem einnig er frá Belgíu samkvæmt upplýsingum fréttastofu, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn á Norðurlandi í júní. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kom konan með honum til landsins. Ákveðið var að handtaka þau ekki strax, heldur fylgjast með ferðum þeirra.
Konan fór svo úr landi áður en lögreglan ákvað að láta til skarar skríða og handtaka manninn. Íslenska lögreglan gaf út handtökuskipun á hendur henni og hún var svo handtekin ytra og framseld hingað frá Belgíu. Hún situr nú í varðhaldi hér.
Fíkniefnasendingin er með þeim stærri sem lagt hefur verið hald á hér á landi. Í bílnum fundust 56 kíló af amfetamíni, átta kíló af kókaíni, þrjú kíló af ketamíni, eitt kíló af kristölluðu metamfetamíni og eitt kíló af svokölluðu bleiku kókaíni, sem er blanda af ketamíni og MDMA.