Auður Rán Magnúsdóttir var að ljúka sínu öðru ári í líffræði við Háskóla Íslands en hún er nýkomin heim úr námsferð til Madagaskar þar sem hún og samnemendur hennar rannsökuðu fjölbreytt lífríki eyjunnar.
Nemendur unnu verkefni í regnskógi Madagaskar sem þeir höfðu undibúið yfir önnina en hópur Auðar rannsakaði köngulær.
Hún segir frá ýmsum atburðum og dýrum sem á vegi hennar urðu. Einu sinni að kvöldi til, í svokölluðu „kvöldfelti“ í skóginum eins og Auður kallar það, mættu hún og ferðafélagar hennar stærðarinnar slöngu.
„Við vorum bara á gangi, svo kallaði vinur minn á mig og þá var risastór bóaslanga í trjágreinunum fyrir framan okkur. Við ætluðum fyrst bara að fylgjast með henni og njóta náttúrunnar úr fjarlægð en síðan prófuðum við öll að halda á henni,“ segir Auður og sýnir mér mynd af sér brosandi með stærðarinnar slöngu um axlirnar.
Auður lenti einnig í því að blóðsuga stökk framan í hana. „Þarna úti var þetta þannig að ef maður fann fyrir einhverju strjúkast við sig eða fann fyrir einhverju á sér voru helmingslíkur á að eitthvað væri að klifra á manni.
Hér heima býst maður bara við að það sé hár eða eitthvað að strjúkast við mann en ég er enn að venjast því eftir að ég kom heim.“
Auður segir frá því að eitt kvöldið hafi prófessorinn og köngulóasérfræðingurinn Ingi, sem er umsjónarkennari námskeiðsins, ákveðið að vera með eins konar köngulóafóbíu-námskeið þar sem hópurinn kom saman og menn prófuðu að halda á köngulóm sem leyndust í skóginum.
Hvaða dýr fannst þér skemmtilegast að sjá?
„Bókstaflega öll. Það var mjög skemmtilegt að hitta Júlla konung,“ segir Auður og vitnar þannig í hinn víðkunna lemúrakonung úr teiknimyndinni Madagaskar.
„Við fórum í lemúragarð sem er til að vernda þá og halda stofninum uppi en flestar lemúrategundir eru í útrýmingarhættu vegna eyðingar regnskóga.Við sáum lemúra þar og líka í þjóðgörðum. Þeir voru eiginlega bara alls staðar þar sem var góður skógur.“
Þar að auki fannst Auði mjög gaman að sjá svarta ekkju (könguló), kameljón og fyrrnefnda slöngu.
Auður er svo sannarlega óhrædd við dýrin sem leynast í regnskóginum og finnst slöngur og köngulær frekar vera áhugaverðar verur í stað óhugnanlegra.
Ítarlegt viðtal er við Auði í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.





