Hreinsunarstarf er hafið í Kólumbíu eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir fyrir viku.
Borgin Pereira, í vesturhluta landsins, varð einna verst úti í skjálftanum sem var 7,4 að stærð. Borgin er í stærsta kaffiræktunarhéraði landsins og aðeins 55 kílómetra frá miðju skjálftans.
Björgunarlið hafa leitað þeirra sem enn er saknað, í kappi við tímann, en vonir um að finna fólk á lífi hafa dvínað mikið.
Yfirvöld gáfu íbúum leyfi til þess að sækja persónulega muni í skemmdar byggingar í gær.
UNICEF hefur starfað í Pereira og Cali í tuttugu ár
Borgin Cali, sem er þriðja stærsta borg landsins, varð einnig illa úti í skjálftanum. Þar hafa björgunarlið þurft að beita handafli til að finna fólk í rústum húsa.
Íbúum sem geta ekki snúið aftur til síns heima hefur verið komið fyrir á íþróttaleikvöngum þar sem þeir fá mat, föt og hreinlætisvörur.
Staðfest er að 287 létust í skjálftanum, hátt í 4000 slösuðust og 500 er enn saknað.
Þrettán þúsund heimili skemmdust.
Tanya Chapuisat, starfar sem fulltrúi UNICEF, í vesturhluta Kólumbíu þar sem borgirnar Pereira og Cali eru.
Hún segir í samtali við fréttastofu að hún óttist áhrif og eftirköst skjálftans á börn.
Þúsundir barna hafa orðið fyrir áhrifum skjálftans og ætla má að 800 skólar hafi orðið fyrir skemmdum og þeim hefur víða verið lokað.
Helstu verkefni UNICEF hafa verið í borgunum Pereira og Cali.
Fjöldi hjálparsamtaka að sinna mikilvægum verkefnum
Tanya segir að helsta áhersla UNICEF á þeim svæðum sem urðu verst úti í skjálftanum sé á að koma drykkjarvatni og hreinlætisvörum til fjölskyldna.
Hún segir að helstu áhyggjurnar snúi þó að áhrifum skólalokana á börn og daglegt líf þeirra. Því lengur sem skólarnir séu lokaðir því meiri tíma fái glæpahópar til að hneppa börn í vinnu hjá sér.
Skemmdir á mikilvægum innviðum hafa valdið því að vatn og rafmagn eru af skornum skammti, erfiðara er að fá heilbrigðisþjónustu og að meta hjálparþarfir fólks í dreifðari byggðum vegna lélegra fjarskipta.
UNICEF hefur í tuttugu ár starfað á þeim svæðum sem urðu verst úti í skjálftanum.
Tanya segir að þrátt fyrir að verkefnin sé ærin séu fjöldi öflugra, alþjóðlegra hjálparsamtaka að störfum í landinu sem sinni þeim af heilindum.