Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi borgarfulltrúi, segir það óumdeilt að borgin þurfi að hagræða. Borgarkerfið hafi vaxið mikið og fækka þurfi stjórnendum. Hún segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu: „Árið 2023 lagði ég til að stafrænt ráð yrði lagt niður og ári síðar að gerð yrði óháð úttekt á þjónustu- og nýsköpunarsviði með hagræðingu í huga. Hafði lengi gagnrýnt umfang og kostnað stafrænnar vegferðar borgarinnar en ekki var tekið vel í þær hugmyndir.
Kolbrún hugsi yfir niðurskurðinum hjá borginni: „Ég vona svo sannarlega að það gangi eftir“