María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður leit við í ÍR-heimilið þar sem verið er að telja atkvæði sem greidd voru í borgarstjórnarkosningum í dag. Ólöf Magnúsdóttir tók á móti henni og fór yfir hvernig atkvæði eru talin og gengið úr skugga um að talning sé rétt.
Ólöf segir marga sem taka þátt sérfræðinga í að meðhöndla atkvæði.
„Það er alveg ótrúlega mikið af sama fólkinu sem kemur aftur og aftur og aftur af því þetta er hátíðleg stund – að fá að taka þátt í lýðræðinu.“