Erlendar njósna- og leyniþjónustustofnanir nota „njósnadýr“ til að safna upplýsingum um hafsvæði Kína. Þessu heldur þjóðaröryggisráðuneyti Kína fram.
Ráðuneytið hefur varað við „ósýnilegu leynistríði“ sem væri háð í hljóði í hafinu í kringum Kína. Í færslu á kínverska samfélagsmiðlinum WeChat segir ráðuneytið erlendar stofnanir safna viðkvæmum gögnum „með ýmsum nýjum njósnatækjum“ til að búa til neðansjávarkort sem væru „alvarleg ógn við þjóðaröryggi“ landsins.
Stór sjávardýr, þar á meðal njósnaskjaldbökur og njósnafiskar, hafa fundist á sundi um kínversk hafsvæði með skynjara áfasta, að sögn ráðuneytisins sem gefur ekki upp hvar dýrin hafi fundist eða hvaða ríki nýti sér þau til njósna.
Dýrin eiga að hafa safnað viðkvæmum gögnum um sjávarumhverfið; hitastig sjávar, seltu og hafstrauma, og sent þau til annarra ríkja um gervihnött.
Ráðuneytið segist einnig hafa fundið baujur búnar veðurskynjurum sem erlend hafrannsóknastofnun hafi komið fyrir til að fylgjast með hljóðmerkjum kínverskra kafbáta í rauntíma.
Höfrungar þjálfaðir til öryggisgæslu
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sjávardýr eru sögð vera notuð til njósna. Árið 2023 sagði breska leyniþjónustan Rússa þjálfa höfrunga til öryggisgæslu við flotastöð sína í Sevastopol á Krímskaga. Í skýrslu bresku leyniþjónustunnar segir að Rússar hafi þjálfað höfrunga sem hafi verið haldið í fljótandi kvíum í höfninni til að „vinna gegn óvinaköfurum“.
Kína heldur reglulega fram að njósnir eigi sér stað í höfum við landið. Árið 2024 sögðust yfirvöld þar hafa fundið vita sem eiga að hafa verið faldir á hafsbotni til þess að leiðbeina erlendum kafbátum og „undirbúa vígvöllinn“.
Ríkisstjórn Kína býður sjómönnum vegleg peningaverðlaun, á bilinu 50.000 til 500.000 kínverskra júan (á bilinu 900 þúsund til níu milljóna íslenskra króna) fyrir að finna njósnabúnað í landhelgi landsins. Þetta hefur The Guardian eftir kínverskum fjölmiðlum.