Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segist hafa fyrst heyrt af ákvörðun Vegagerðarinnar, um að taka ferjuna Baldur tímabundið úr áætlunarsiglingum yfir Breiðafjörð, í fjölmiðlum.
Hún segir að lítið samráð hafi átt sér stað í aðdraganda þess og að ákvörðunin hafi verið einhliða.
Baldur siglir þessa dagana á milli Landeyjahafnar og Heimaeyjar á meðan Herjólfur siglir aðeins á einni vél og ræður illa við óhagstætt veðurfar.
Óskýrt í samningnum
Í bókun bæjarstjórnar Vesturbyggðar er þess krafist að Vegagerðin falli frá ákvörðun sinni sem sé ekki í samræmi við samning um ferjuna.
Vísað er til þess að samningurinn heimili aðeins að ferjan sé nýtt sem varaskip í þeim tilvikum sem Herjólfur getur ekki siglt. Hvergi komi fram að heimilt sé að nýta Baldur sem varaskip þegar Herjólfur er einnig að sigla og Baldur aðeins nýttur til að auka flutningsgetu og þjónustu við Vestmannaeyjar.
„Þetta er mjög óskýrt í samningnum,“ segir Gerður í Síðdegisútvarpinu.
Ferðamenn afbóka
Gerður segir bókunarstöðu sumarsins í Baldur hafa staðið vel fyrir breytingarnar. Í ljósi þess að ferjan sé í dag fyrir sunnan missi Vestfirðirnir af mörgum ferðamönnum.
Þeir sem áttu bókað kjósi margir hverjir að fara annað í stað þess að keyra Vestfirðina. Ferðaþjónustan sé þegar farin að finna fyrir mörgum afbókunum.
„Þetta er að koma harkalega niður á ferðaþjónustuaðilum hér á svæðinu.“