„Þetta er skellur, en dómurinn er fallinn,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Fyrstu tölur hafi verið mikil vonbrigði.
Framsóknarmenn eru sigurvegarar kosninganna í Hafnarfirði, samkvæmt fyrstu tölum, þar sem þeir rúmlega tvöfalda fylgi sitt og fá þrjá bæjarfulltrúa í stað eins. Meirihluti þeirra og Sjálfstæðisflokksins heldur.
Samfylkingin missir helminginn af fylgi sínu og fer úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo.
Guðmundur segir greinilega hægri sveiflu sjást í niðurstöðum á ýmsum stöðum en hann kveðst bjartsýnn á að jafnaðarmenn bæti við sig í næstu kosningum.
„Hafnarfjörður verður áfram það kratabæli sem því ber.“
Guðmundur segist ætla að „hugsa sinn gang“.
„Það er ekki vanalegt í pólitík að bera ábyrgð en ég ætla nú að gera það hér. Þetta er meira mín ábyrgð heldur en flokksins. Ég held að þetta séu skilaboð til mín og það að nú eigi ég að hugsa minn gang. Það ætla ég að gera.“
Ertu að hugsa um að stíga til hliðar?
„Það getur vel verið. Ég á eftir að tala við mitt fólk um það,“ segir Guðmundur.
„Kannski er minn tími kominn.“
„Ég held að það sé alveg rétt mat hjá honum, að hann eigi að hugsa sinn gang,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, á kosningavöku Samfylkingarinnar.
Hún segir það ekki koma sér á óvart að sjá hægri sveiflu í sveitarfélögum víða um land.
„Ég held að það sé verið að búa til ákveðið mótvægi, kannski við ríkisstjórnina, og svo er líka ákveðið uppgjör við meirihluta víða um land.“