Morgunblaðinu hefur að undanförnu borist ábendingar um að Íslandspóstur sé að beita sér harðar en áður á þessum markaði.
Á meðal þeirra ábendinga sem hafa borist er að ekkert samræmi sé í þeim kjörum sem fyrirtækjum bjóðast í viðskiptum við Íslandspóst heldur virðist þau einkum stillt af þannig að þau séu annaðhvort nákvæmlega jöfn samkeppninni eða örlítið hagstæðari og að Íslandspóstur hafi tekið upp á því að setja tölustaf fyrir framan heiti póstbox í Shopify þannig að fyrirtækið raðist ofar en keppinautar í þeim tilfellum sem kjör eru jöfn.
Aukinheldur er Íslandspóstur sakaður um að hafa beitt sér fyrir því að viðskiptavinir velji að hafa Íslandspóst efst og jafnvel gegn betri kjörum. Einn verslunareigandi telur að starfsmaður Íslandspósts hafi hakað við slíkt án sinnar vitundar.
Þá hafi Íslandspóstur verið að setja sig beint í samband við netverslanir sem eru í viðskiptum við keppinauta og bjóða þeim lægri kjör, ekki síst á Akureyri þar sem nýr keppinautur kom inn fyrr á árinu.
Íslandspóstur er sem kunnugt er markaðsráðandi og í sérstakri samkeppnisstöðu í ljósi þess að fyrirtækið er útnefnt sem alþjónustuveitandi póstþjónustu á Íslandi af hálfu hins opinbera. Þess er þó rétt að geta að alþjónustuhlutverk fyrirtækisins nær ekki lengur til pakkasendinga innanlands, nema á dreifbýlustu svæðum landsins.
Morgunblaðið spurði forstjóra Íslandspósts skriflega út í þær ábendingar sem borist höfðu.
Eru netverslanir að fá mismunandi kjör og afslætti hjá Íslandspósti?
„Já, kjör og afslættir fara eftir magni sendinga, rétt eins og hjá öðrum fyrirtækjum. Slík kjör eru stöðluð eftir magni.“
Bjóðið þið netverslunum sérkjör ef þær eru eingöngu í viðskiptum við Íslandspóst?
„Engin sérkjör eru í boði fyrir að vera eingöngu í viðskiptum við Póstinn en við teljum mikilvægt að netverslanir ákveði sjálfar hvaða þjónustuaðila þær kjósa að nota til að dreifa pöntunum fyrir sig.“
Hafið þið lækkað verð á þjónustu við netverslanir á Akureyri á þessu ári eða boðið viðskiptavinum tímabundinn afslátt í sumar?
„Við höfum boðið netverslunum sem hafa sýnt áhuga á að hefja viðskipti við okkur, hvar sem þær eru á landinu, tímabundinn kynningarafslátt þar sem þeim gefst kostur á að prófa þjónustuna hjá okkur, sambærilegt við það sem gengur og gerist á almennum samkeppnismarkaði.“
Hvers vegna hófuð þið að setja tölustafinn 1 fyrir framan nafnið á póstboxi?
„Undanfarin misseri höfum við prófað fjölbreyttar leiðir sem geta haft áhrif á birtingar póstboxa í netverslunum, þetta er liður í þeim prófunum. Röðun afhendingarleiða í greiðsluferlum ræðst þó af mörgum þáttum, meðal annars uppsetningu viðkomandi netverslunar og tæknilegum stillingum.“
Hafið þið farið þess á leit við verslanir að haka við að hafa Íslandspóst alltaf efst í Shopify-appi Póstsins og bjóðið þið einhver sérkjör ef það er gert?
„Við bjóðum ekki sérkjör gegn því að verslanir haki við að hafa Póstinn efst.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar samkeppnishæf kjör sem taka mið af umfangi og þörfum hverju sinni, rétt eins og tíðkast hjá öðrum fyrirtækjum. Í því felast m.a. tímabundin afsláttarkjör á meðan viðskiptavinir prófa þjónustuna hjá okkur og staðlað verð sem tekur mið af magni sendinga.
Áhersla er lögð á heiðarlega viðskiptahætti og við viljum vinna með fyrirtækjum á þeim forsendum að þau kjósi okkur vegna gæða og þjónustu; ekki vegna kvaða eða skilyrða. Við erum meðvituð um stöðu okkar á samkeppnismarkaði og við fylgjum öllum þeim reglum sem þar gilda.“