Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (e. EBU) greinir frá þessu í fréttatilkynningu og segir að Kanada sé fyrst nýrra landa til að taka þátt í Eurovision síðan Ástralía slóst í hóp keppenda árið 2015.
Í síðustu viku var greint frá því að CBC/Radio-Canada sjónvarpsstöðin hefði hlotið inngöngu í EBU. Samkvæmt reglum keppninnar hafa meðlimir EBU rétt til þess að taka þátt í keppninni. Áður en umsókn landsins var samþykkt var Kanada einungis áheyrnarmeðlimur.
Í tilkynningunni segir að áhugi á Eurovision meðal Kanadamanna sé mikill og að í síðustu keppni hafi Kanada verið í hópi stærstu atkvæðagreiðenda utan Evrópu.