Matvælastofnun hefur kært brot á lögum um dýravelferð til lögreglu vegna innbrotanna í Reykjabúið og svínabú Stjörnugríss fyrr á árinu.
Þetta staðfestir Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir sem segir mjög líklegt að það verði einnig gert vegna innbrotsins á loðdýrabúið Dalsbú í vikunni.
„Við munum skoða lögregluskýrslu og taka afstöðu til hennar – en út frá þeim upplýsingum sem við vitum er augljóst að það er búið að brjóta á velferð fjölda dýra,“ segir Þóra.
Lögregla rannsakar brot á dýravelferð þegar MAST kærir
Lögregla rannsakar ekki brot á lögum um velferð dýra nema að undangenginni kæru frá Matvælastofnun. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir það að tvö ólík yfirvöld rannsaki eða jafnvel refsi fyrir sama brotið.
Í brotum sem ekki teljast meiriháttar hefur Matvælastofnun heimild til að rannsaka og beita refsingum í formi stjórnvaldssekta. Ef brot er talið meiriháttar ber stofnuninni hins vegar að kæra það.
Þá getur lögregla lagt fram ákæru vegna brota á lögum um velferð dýra.
Stórfelld eða ítrekuð brot á dýravelferð geta varðað allt að tveggja ára fangelsi. Samkvæmt almennum hegningarlögum getur einnig varðað tveggja ára fangelsi ef lífi eða heilbrigði húsdýra er stofnað í hættu.