Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir að því meiri umræða sem verði um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst, því meira verði almenningur fráhverfari hugmyndinni. „Hvaða hugmynd er það? Að klofinni og brothættri ríkisstjórn, sem vill ekki nema að hluta til ganga í Evrópusambandið, sé veitt umboð sem hún fékk ekki í almennum kosningum til þess að senda sitjandi utanríkisráðherra til Brussel til að semja um grundvallarmál okkar Íslendinga til allrar framtíðar,“ segir Snorri í færslu á Facebook.
Jón Viðar hjólar í Snorra og vitnar í Göbbels: „Er og verður hrein og klár lygi“