Innheimtustofnun sveitarfélaga var í dag sýknuð af kröfum fyrrverandi forstjóra stofnunarinnar sem hljóðuðu upp á rúma 91 milljón króna.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Jón Ingvar Pálsson, sem sagt var upp störfum sem forstjóri stofnunarinnar árið 2021, vildi fá 91 milljón króna greiddar vegna frestaðrar töku námsleyfis, fjártjónsbóta sökum ólögmætrar starfsuppsagnar og svo vegna miska sem hann taldi uppsögnina hafa valdið sér.
Vanefndi grundvallarskyldur sínar
Jóni Ingvari var sagt upp störfum í kjölfar þess að upp komst að innheimtuverkefnum stofnunarinnar hefði verið ráðstafað til Officio ehf., lögmannsstofu á vegum annars starfsmanns stofnunarinnar, Braga Axelssonar.
Héraðsdómur benti á að Jón Ingvar hefði ekki upplýst stjórn stofnunarinnar um að slíkur samningur hefði verið gerður fyrr en fjölmiðlar hófu að fjalla um málið.
Taldi dómurinn að með háttsemi sinni hefði Jón Ingvar rofið trúnað sem honum bar að gæta gagnvart stofnuninni og brugðist skyldu sinni til að stýra stofnuninni í samræmi við lögbundið hlutverk hennar. Hann hefði þar með vanefnt grundvallarskyldur sínar sem forstjóri stofnunarinnar.
Í ljósi alvarleika brota Jóns Ingvars taldi héraðsdómur að stofnuninni hefði verið heimilt að að víkja honum úr starfi án fyrirvara og sýknaði hana því af öllum kröfum Jóns Ingvars, sem jafnframt var gert að greiða stofnuninni 1,5 milljón króna í málskostnað.