JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segir að stjórnvöld séu með Íran í efnahagslegri spennitreyju, sem verði ekki aflétt nema að Íranar breyti hegðun sinni. Milljónir tunna af olíu hafi farið um Hormússund í dag.
Vance hélt blaðamannafund í Hvíta húsinu í dag þar sem hann fór yfir viljayfirlýsinguna um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran sem var undirrituð í gærkvöld. Bæði Donald Trump forseti Bandaríkjanna og leiðtogar Írans hafa sagt yfirlýsinguna vera sigur fyrir sig, en Trump hefur verið gagnrýndur töluvert fyrir að gefa of mikið eftir gagnvart Íran.
Vance vísað þeirri gagnrýni á bug. Hann sagði meðal annars að 12,5 milljónir tunna af olíu hefðu farið í gegnum Hormússund frá því það var opnað auk þess sem olíuverð hefði lækkað töluvert og myndi halda áfram að lækka.
Ísraelsmenn verða að verja samkomulagið
Að auki sagði Vance að fjárskortur myndi koma í veg fyrir að Íranar gætu eignast kjarnorkuvopn á ný eftir að Bandaríkjamenn eyðilögðu kjarnorkuinnviði þeirra. Bandaríkin hefðu Íran í efnahagslegri spennitreyju sem yrði ekki losuð fyrr en þeir breyttu hegðun sinni í grundvallaratriðum. Engu myndi breyta þótt Íranar gætu selt meiri olíu núna.
Vance sagði einnig að Ísraelsmenn yrðu að verja þetta samkomulag eins og aðrir en ráðherra hafa áður talið sig óbundna samkomulaginu þó að Líbanon sé hluti af því. Ótækt sé að skömmu eftir að árangur næst í samkomulagsátt séu sprengjur sprengdar í hverfi almennra borgara í Beirút. „Donald Trump er eini leiðtoginn í heiminum sem er velviljaður Ísrael þessa stundina,“ sagði hann. Hann sagði að hann myndi hugsanlegt halda til Sviss um helgina þar sem viðræður eiga að hefjast við Íran um frið til frambúðar.
Vance staðfesti einnig að 60 daga tíminn sem gefinn er til að ná samningum hefjist í dag. Það þýðir að frestur til að ná samkomulagi rennur út 17. ágúst. Möguleiki er þó að semja um lengri frest.
Bandaríski herinn tilkynnti síðdegis að herkvínni við íranskar hafnir hefði verið aflétt, en hún hefur nú staðið í tvo mánuði.