Jason Arday, fyrrverandi prófessor við Cambridge-háskóla, fannst látinn á heimili sínu

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Prófessorinn Jason Arday, fannst látinn á heimili sínu fyrir nokkrum dögum.
Hann var á lífi þegar komið var að honum en síðar úrskurðaður látinn á vettvangi.
Talsmaður Metropolitan lögreglunnar sagði að lögreglumenn hefðu verið kallaðir til um miðjan dag á föstudag.
Hann sagði: ,,Því miður var 41 árs gamall maður úrskurðaður látinn á vettvangi. Nánustu aðstandendur hans hafa verið upplýstir og fá stuðning lögreglunnar.”
Andlátið er óvænt en ekki talið grunsamlegt. Málið er í rannsókn.
Kallað hafði verið eftir sjúkrabíl og viðbragðsteymi sent af stað en þeim tókst ekki að bjarga lífi hans.
Arday lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Eftirmæli þeirra er að hann hafi verið blíður maður, ótrúlegur faðir, félagi, frændi, bróðir og sonur.
Fjölskyldan hélt fram, í yfirlýsingu, að þeir sem vildu grafa undan honum létu sitt ekki eftir liggja og bentu á að þeir hefðu verið á eftir honum í þrjú ár. Þau segja að rangfærsluherferðin hefði verið of mikil fyrir þennan blíða mann sem vildi sjá það besta í öllu.
Sagði af sér
Arday sagði af sér sem prófessor í félagsfræði menntunar við Cambridge-háskóla 5. ágúst, eftir ásakanir um ritstuld. Hann var yngsti svarti prófessor háskólans frá upphafi.
Í síðustu viku hóf Cambridge rannsókn á ráðningu Arday við háskólann. Það mun leiða til endurskoðunar á ráðningarferli háskólans fyrir öll æðstu akademísk störf. Arday sagði af sér aðeins nokkrum klukkustundum eftir að háskólinn tilkynnti rannsóknina.
Hér má lesa um svikaferil Jason Arday sem var yngsti svarti prófessorinn og mörgum þótti ferill hans ótrúlegur sem og var raunin.
Andlát Arday er harmleikur og margir hafa tjáð sig og vottað aðstanendum samúð sína.
Prófessor Deborah Prentice, rektor Cambridge, sagði: ,,Við erum ákaflega sorgmædd að heyra þessar sorglegu fréttir. Hjartanlegar samúðarkveðjur okkar beinast til fjölskyldu og vina Jason Arday á þessum ótrúlega erfiða tíma."
Talsmaður Durham-háskóla sagði: ,,Við erum hneyksluð og mjög sorgmædd að frétta af andláti Jason Arday. Jason var meðlimur í félagsfræðideild Durham-háskóla á árunum 2019 til 2022.”
Lucy Powell, menntamálaráðherra, sagði: "Ég er djúpt slegin og sorgmædd að heyra af dauða Jason Arday.
Heimild: Jason Arday found dead