Jarðskjálfti af stærðinni 2,9 varð skammt frá Landmannalaugum laust fyrir klukkan fimm í dag. Skjálftanum hafa fylgt smáskjálftar. Veðurstofu hafa borist tilkynningar um skjálftinn hafi fundist vel í Landmannalaugum.
Svæðið er þekkt jarðskjálftasvæði og ekki er óalgengt að skjálftar af svipaðri stærð mælist á svæðinu.