Sigurlín Guðmundsdóttir stígur fram í nýju viðtali hjá Brotkasti og segir frá sambandi sínu við palestínskan hælisleitanda sem hún kynntist árið 2022, hjálpaði til Íslands og giftist bæði samkvæmt íslömskum sið og síðar borgaralega í Danmörku.
Það sem byrjaði sem ástarsaga þróaðist hins vegar með dramatískum hætti þegar stríðið milli Ísraels og Hamas hófst þann 7. október 2023. Samkvæmt Sigurlínu breyttist allt þann dag.
Hún segir að þegar hún kom heim úr vinnu hafi eiginmaður hennar setið fyrir framan sjónvarpið, horft á beina útsendingu frá árásunum og fagnað því sem var að gerast.
„Hann stóð þarna og hoppaði af kæti,“ segir hún í viðtalinu.
Segir hann hafa viðurkennt að vera Hamas-liði
Sigurlín segir að eftir árásirnar hafi maðurinn farið að segja henni frá tengslum sínum við Hamas.
Hún segir hann hafa lýst því að öll börn á Gaza fái herþjálfun hjá Hamas, bæði strákar og stelpur, og að hann sjálfur hafi verið sérþjálfaður sem leyniskytta.
Síðar hafi hann einnig sagt henni að hann hefði starfað sem tæknimaður í göngum Hamas á Gaza.
„Hann sagðist í raun bara vera Hamas-liði,“ segir Sigurlín.
Hún segir manninn enn vera staddan á Íslandi þrátt fyrir að hafa fengið brottvísun.
Segir fleiri Hamas-tengda menn vera hér á landi
Í viðtalinu segist Sigurlín einnig hafa áttað sig á því að vinir og félagar mannsins hér á landi væru að hennar mati einnig tengdir samtökunum.
„Það er bara alveg bókað mál. Það er hópur af Hamas-liðum á Íslandi,“ segir hún.
Hún segist hafa þagað um þetta af skömm og ótta á sínum tíma.
„Ég vildi ekki vera að hræða fólk með því að ég væri með Hamas-liða inni á heimilinu mínu.“
Segir söfnunarfé frá Íslandi hafa farið til Hamas
Sigurlín heldur því einnig fram að fjármunir sem safnað var hér á landi fyrir fjölskyldu eiginmannsins á Gaza hafi að hluta ratað til þekkts Hamas-liða.
Hún segist hafa komist að því eftir að hafa fundið glósur á arabísku þar sem fram kom hvert peningarnir fóru.
Maðurinn hafi safnað fé meðal almennings á Íslandi með opnum hætti á Facebook, undir þeim formerkjum að aðstoða fjölskyldu sína vegna stríðsins.
Fór frá honum eftir andlegt ofbeldi
Eftir að maðurinn fékk vinnu hér á landi segir Sigurlín að hegðun hans hafi gjörbreyst.
Hún lýsir andlegu ofbeldi, stjórnsemi og því að hann hafi farið að stjórna hvernig hún klæddist, hvaða myndir væru á samfélagsmiðlum hennar og hvernig hún hagaði samskiptum sínum við aðra.
Hún segist í dag hafa yfirgefið íslam og snúið aftur til kristinnar trúar.
Sigurlín segir reynslu sína hafa gjörbreytt sýn sinni á bæði íslam og innflytjendamál.
„Ég vona að fólk fari að átta sig á hvers lags fólki við erum að hleypa hingað inn,“ segir hún að lokum.
Hér fyrir neðan má sjá stutt brot úr spjalli Frosta Logasonar og Sigurlínu en viljir þú sjá viðtalið í heild mælum við með áskrift á Brotkast.is