Ísland heldur þriðja sætin á regnbogakorti ILGA, samtaka yfir réttindi hinsegin fólks í Evrópu og Mið-Asíu árið 2026. Ísland hefur færst úr 18. sæti í það þriðja frá árinu 2018.
Spánn fer úr fimmta sæti í það fyrsta og Malta færist í það þriðja eftir tíu ár í fyrsta sæti. Því næst koma Ísland, Belgía og Danmörk.
Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins kemur fram að Ísland bæti við sig tveimur prósentustigum frá fyrra ári vegna skrefa sem tekin hafa verið með nýrri aðgerðaráætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2026 til 2029.
Ísland uppfyllir því nú um 86% viðmiða ILGA-samtakanna um réttindi hinsegin fólks. Til samanburðar uppfylla Evrópulönd að meðaltali 43% viðmiða samtakanna og ríki Evrópusambandsins 52%.
Þá vermir Ísland jafnframt efsta sætið á réttindakorti trans fólks í Evrópu (TGEU) sem sýnir fram á stöðu trans fólks með sama hætti.
Áhyggjur af bakslagi víða í Evrópu
Í fréttatilkynningu ILGA kemur fram að hagur hinsegin fólks fari almennt versnandi í mörgum aðildarríkjum samtakanna, meðal annars í Þýskalandi, Slóvakíu og Tyrklandi.
Á því séu þó ánægjulegar undantekningar á borð við hástökk Spánar og Svíþjóðar á kortinu. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dóms- og jafnréttisráðherra tekur undir þær áhyggjur.
„Við sjáum víða í Evrópu bakslag í réttindum hinsegin fólks og við finnum líka fyrir harðari orðræðu og aukinni andstöðu hér á landi.
Þess vegna skiptir máli að standa vörð um þau réttindi sem hafa unnist og halda áfram að sækja fram. Næsta skref er að halda áfram með metnaðarfulla aðgerðaáætlun okkar og tryggja að hinsegin fólk njóti sömu réttinda, öryggis, virðingar og tækifæra og aðrir í íslensku samfélagi,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði í tilkynningu ráðuneytisins.