Ísland trjónir á toppi lista alþjóðlega tryggingafyrirtækisins William Russell yfir bestu lönd í heiminum til að flytja til. Næst fyrir aftan eru Lúxemborg og Nýja-Sjáland.
Niðurstöðurnar byggja á ýmsum þáttum, möguleikar á launum, almenn lífsgæði, hvernig heimamenn taka á móti aðfluttum, hversu auðvelt er að fá vinnu, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, aðgengi að fjármálaþjónustu og hversu vel aðfluttir geta tekið þátt í samfélaginu. Þegar litið er til þessara þátta, eins og þeir birtast í tölum OECD, World Bank og Internations, þá nær Ísland 8,94 stig af 10.
- Ísland 8,94
- Lúxemborg 8,69
- Nýja-Sjáland 8,57
- Ástralía 8,54
- Sviss 8,36
- Írland 7,89
- Kólumbía 7,71
- Tékkland 7,62
- Portúgal 7,47
- Austurríki 7,40
Ísland er metið að besta landið til að flytja til. Þeir sem hafa flutt til Íslands mælast með lágt atvinnuleysi og eiga auðveldara með að aðlagast þjóðfélaginu hér en annars staðar. Í greiningunni segir að það þýði lítið að taka mið af vinsælustu löndunum eða þeim sem auðveldast er að komast til, taka þurfi sérstakt mið af því hversu auðvelt það er að fá vinnu og taka þátt í þjóðfélaginu.
Willam Russell er með höfuðstöðvar í Bretlandi og Belgíu og sérhæfir sig í alþjóðlegum tryggingum fyrir fólk sem flytur milli landa í styttri og lengri tíma.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar fluttust 3.167 fleiri til Íslands en frá landinu á árinu 2025. Það eru færri en árið 2024 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 4.044. Flutningsjöfnuður varð mestur árið 2022, þegar 8.660 fleiri fluttu til landsins en frá því, en síðan þá hefur jafnt og þétt dregið úr honum.