Íranski byltingarvörðurinn segir árásir Íranshers hafa hæft mikilvæga hernaðarinnviði bandaríska hersins í Barein og Kúveit. Bandaríkjamenn hafa ekki tjáð sig um árásir Írana.
Í yfirlýsingu byltingarvarðarins segir að árásirnar hafi beinst gegn tveimur herstöðvum í hvoru landi fyrir sig. Þær hafi verið svar við árásum Bandaríkjahers á Íran í kvöld. Ef Bandaríkin ætli sér að halda uppteknum hætti og endurtaka árásir á Íran þá muni Íransher ráðast á fleiri herstöðvar við Persaflóa.
Þetta er önnur nóttin í röð sem Bandaríkin og Íran skiptast á árásum.
Donald Trump hótaði í gær frekari árásum á Íran og sagði samkomulag um vopnahlé runnið út í sandinn.
Fréttamenn AFP segja að þeir hafi heyrt sprengingar í Manama, höfuðborg Barein, skömmu eftir að loftvarnarflautur ómuðu.
Þá greindu hernaðaryfirvöld í Kúveit frá því í nótt að herinn væri að verjast flugskeyta- og drónaárásum. Allar sprengingar sem heyrðust væru tilkomnar vegna þess að loftvarnarkerfi Kúveits væru að „hindra árás óvinarins“.