Við tökum einnig stöðuna á pólitíkinni í Bretlandi þar sem allt virðist í upplausn innan raða Verkamannaflokksins. Þingmaður úr röðum Kier Starmer forsætisráðherra Bretlands skorar á ráðherra innan flokksins að bjóða Starmer byrginn. Um hálfgerða uppreisn er að ræða.
Við ræðum einnig við framkvæmdastjóra Barnaheilla sem gagnrýnir frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð fyrir fólk á flótta sem á að vísa úr landi harðlega. Hún segir það óboðlegt að frelsissvipta börn í viðkvæmri stöðu.
Þá tökum við stöðuna á Bakgarðshlaupinu þar sem níu hlauparar hafa nú verið að í um 27 klukkustundir.
Í sportinu förum við yfir úrslit gærkvöldsins úr Bónus deild karla í körfubolta.