Hjónin Tyrfingur Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir stunda svokallaðan auðgandi landbúnað á Tyrfingsstöðum í Ásahreppi á Suðurlandi.
„Á hverjum degi búum við til ný hólf fyrir kýrnar,“ segir Tyrfingur Sveinsson bóndi.
Auðgandi landbúnaður snýst um að bæta jarðveginn með skipulagðri beitarstýringu. Kastljós kíkti í heimsókn til hjónanna.
„Það verður mikið traðk og stíf beit á landinu í stuttan tíma, í sólarhring, þær taka niður allt gras og skíta mikið og bera á landið í leiðinni. Svo færum við þær yfir í næsta hólf og landið þar sem þær eru búnar fær frið í næstu tvo til þrjá mánuði og þess vegna lengur og grasið fær frið til að vaxa upp aftur,“ bætir hann við.
Úr lofti sjást vel hólfin sem kýrnar hafa verið í síðustu daga. Hænurnar fylgja svo í humátt á eftir.
„Þetta byggist svo líka á því að við komum með hænur, færum hænurnar á eftir kúnum, þær róta í kúadellunum og éta þar lirfur, flugur og orma sem þær finna.“
„Hér eru hænurnar að elta kýrnar, kýrnar eru búnar að skilja eftir sig þessar kúadellur, eins og þessi sem er óslitin. Og hænurnar koma og leita að möðkum, flugum og eggjum í skítnum,“ segir Hulda Brynjólfsdóttir og segir að hænurnar séu einskonar skítadreifarar.
Vilja skilja eftir betra land fyrir framtíðar kynslóðir
Hænurnar eru færðar á þriggja til fjögurra daga fresti og þær verpa í sérútbúinn bíl sem er færður með þeim.
„Hænurnar skilja líka eftir sig skít sem eflir grasvöxt fyrir kýrnar, þegar kýrnar koma aftur næsta hring. Þetta eflir hvort annað og styrkir hvort annað og hefur keðjuverkandi áhrif,“ segir Tyrfingur.
„Þetta er til að byggja upp jarðveginn, við erum alltaf að horfa á jarðveginn og hvernig náttúran gerir það. Ef það er eitthvað vandamál sem kemur upp þá erum við alltaf að skoða Hvernig leysir náttúran þetta vandamál?“
„Þannig að við erum alltaf að reyna að vinna með henni og hugsa um hvernig hún gerir það og ekki að vinna á móti henni. Við notum ekki eiturefni, mér finnst þetta heilbrigðara á allan hátt og heilnæmara, við erum að fá hollari matvöru þegar upp er staðið en líka að bæta landið, og skilja eftir betra land fyrir þá sem eftir koma heldur en við tökum við eða þannig,“ bætir Hulda við.
Þau hafa ekki notað tilbúinn áburð á túnin síðan 2022. Í staðinn nota þau lífrænan áburð, kjötmjöl, hænsnaskít og moltu sem þau útbúa sjálf. Tyrfingur segir að grasvöxturinn aukist smám saman.
Þau byrjuðu að prófa sig áfram með þessar aðferðir 2019 eftir að hafa kynnt sér málið erlendis.
„Þetta fer alveg gegn hefðbundnum búskaparaðferðum á Íslandi, þannig það tók tíma að meðtaka þetta og trúa þessu en við ákváðum að prófa og árangurinn sýnir sig fljótt,“ segir Tyrfingur.
Lengri beitartími og fleiri dýr
Þau segjast nýta landið betur og geta haft fleiri gripi á landinu. Grasvöxtur sé meiri þegar jarðvegurinn fær frí frá skepnum en þegar allri hjörðinni var beitt á allt landið á sama tíma, og þau geti haft dýrin lengur úti.
„Við getum verið með langan beitartíma miðað við það sem áður var,“ segir hann.
Áður byrjuðu þau að gefa þeim um mánaðamótin ágúst-september – nú eru kýrnar á beit út október, stundum fram í nóvember í góðri tíð.
„Þegar við erum að gefa þá erum við að gefa þessari hjörð tvær til þrjár rúllur á dag. Það er heilmikill sparnaður á því. Það munar um hvern dag sem maður getur sparað heygjöf.“
Hjónin segja bæði að þeim þyki búskapurinn skemmtilegri en áður.
„Þetta er miklu minni traktorsvinna núna, við þurfum að afla minni heyja og erum ekki lengur að bera tilbúinn áburð. Í raun og veru snýst vinnan núna meira um að vera með skepnunum, til dæmis með þessum færslum á skepnunum,“ segir Tyrfingur.
„Við höfum vissulega meiri áskoranir hér á landi heldur en erlendis, þá ekki endilega af því að það er svo kalt, heldur fyrst og fremst því að það verður aldrei heitt,“ segir Hulda.
„Setningin „þetta hefur alltaf verið gert svona“ fær hárin til að rísa á höfðinu á okkur. Þá förum við alltaf að hugsa: hvað getum við þá gert öðruvísi? En líka erum við að horfa til fortíðar, hvernig var þetta gert, áður en allt þetta gervidrasl kom til sögunnar. Svo ég segi það nú bara eins og það er,“ bætir Hulda við.