Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, setur stórt spurningamerki við að hópurinn sem gagnrýnir þingflokk Samfylkingarinnar vilji að Ísland gangi í Evrópusambandið. Líkt og DV greindi frá í morgun hefur stór hópur fólks í Samfylkingunni, sem og nokkrir óháðir jafnaðarmenn, mótmælt fyrirhugaðri brottfararstöð sem samþykkt var á Alþingi í gær. Hópurinn, sem inniheldur meðal annars fyrrum ráðherra, þingmenn og borgarfulltrúa flokksins, krefst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð og Samfylkingin taki málið fyrir.
„Hvort sem við erum sammála eða ósammála skoðunum greinarhöfunda hlýtur okkur öllum að finnast áhugavert að hugleiða að meira og minna öll þau sem skrifuð eru fyrir greininni eru eldheitir stuðningsmenn þess að Ísland gangi í Evrópusambandið,“ skrifar Sólveig Anna á Facebook en hún hefur lýst því yfir að hún sé á móti því að Ísland fari í aðildarviðræður við ESB.
Þessi afstaða hópsins að vera á móti brottfararstöð en fylgjandi inngöngu í ESB sé áhugaverð þar sem slíkar brottfararbúðir séu í samræmi við það sem ESB gerir í sambandi við hælisleitendur. „ESB hefur innleitt ferla og lög sem snúast um að hafa stjórn á komum flóttafólks og hraða brottvísunum,“ segir hún.
Þá hafi mannréttindasamtökin Amnesty International gagnrýnt ESB fyrir framkomu sína í garð flóttafólks og hælisleitenda. „Það er undarlegt að greinarhöfundar sjái ekki að „umbætur“ (bæði íslensk stjórnvöld og ESB kalla allt sem þau gera þegar kemur að málefnum flóttafólks „umbætur“) Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins eru innileiddar ekki síst til að koma til móts við kröfur ESB um hvernig meðhöndla skuli afleiðingar allar þeirrar hörmulegu ógæfu sem hernaðarhyggja, heimsvaldastefna og and-diplómasía Vesturveldanna hefur leitt yfir heimsbyggðina,“ segir hún og spyr:
„Við hljótum að spyrja: Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“