Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, segir að 250-300 milljónir vanti í afrekssjóð svo hægt sé að jafna stöðu þátttakenda í yngri landsliðum.
Björgvin Þór Rúnarsson, faðir ungs afreksíþróttamanns í körfubolta, vakti athygli á miklum kostnaði sem foreldrar afreksfólks í íþróttum þurfa að leggja út í pistli á Facebook fyrir helgi. Hann telur kostnað vegna þátttöku sonar síns í körfuboltalandsliði ungmenna á milli 6-7 milljóna króna síðustu ár.
„Ósanngjarnt gagnvart þessum krökkum“
Björgvin Þór segir kostnaðinn einkum felast í ferðalögum, hótelgistingu og því að greiða fyrir starfsmenn.
„Kostnaður við til dæmis son okkar, á EM20 núna í körfunni, var 250 þúsund til að fá að klæðast landsliðstreyjunni. Ég er bara að reyna að vekja athygli á þessu, hvað mér finnst þetta vera ósanngjarnt gagnvart þessum krökkum sem eru að leggja sig í þetta,“ segir Björgvin Þór í viðtali við fréttastofu.
Vantar fjármagn í afrekssjóð
Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, segir þessa umræðu ekki nýja af nálinni.
Hluti af afreksstefnu ÍSÍ sé að mæta kostnaði við þátttöku ungmenna í landsliðsstarfi svo hún sé ekki háð efnahag foreldra eða sérsambanda. Afreksmiðstöð Íslands var stofnuð fyrir rúmu ári samhliða innspýtingu í afrekssjóð.
„Hluti af þeim peningum er ráðstafað með samningi við menntamálaráðuneytið í kostnaðarhlutdeild ungmenna í landsliðsstarfi og þetta er um 25-30% endurgreiðsla á kostnaði í dag miðað við umfang sjóðsins sem er um það bil 116 milljónir í dag,“ segir Willum Þór í viðtali við fréttastofu.
„Til að jafna þetta aðgengi að fullu þyrftu svona 250-300 milljónir að bætast við í þennan sjóð.“
Ekki fengið endurgreiðslu úr afrekssjóði
Björgvin Þór segist ekki hafa fengið endurgreiddan kostnað úr afrekssjóði. Hins vegar hafi Hafnarfjarðarbær styrkt ungmenni í landsliðsstarfi í bænum.
„Það er náttúrulega bara brotabrot af því sem þetta kostar þessa krakka að vera í landsliði en það er virðingarvert – það sem Hafnarfjarðarbær er að reyna að gera. Einnig hefur hann náttúrulega safnað mikið hjá fyrirtækjum, einstaklingum og fjölskyldu fyrir þessar landsliðsferðir,“ segir Björgin Þór og vísar þá til sonar síns.
„Ég myndi vilja sjá ríkisvaldið koma með stærri styrki og meiri styrki inn í afreksstarfið, þannig að þessir krakkar geti einbeitt sér að því að vera landsliðsmenn en ekki þurfa að vera í fjáröflunum allt sumarið til þess að geta fengið að spila fyrir Íslands hönd.“