Tæplega hundrað skjálftar hafa mælst á Reykjaneshrygg í jarðskjálftahrinu sem hófst á fjórða tímanum í nótt.
Fyrsti og stærsti skjálftinn var 4,1 að stærð og reið yfir klukkan 3:38. Hann var 26 kílómetra vestsuðvestur af Eldey. Fjórir skjálftar hafa mælst sem voru 3,0 eða stærri og nokkrir til viðbótar rétt undir 3,0.
Jarðskjálftahrinur eru algengar á þessum slóðum. Þær eru hluti af flekahreyfingum. Síðast mældist skjálfti yfir 4 23. mars. Kröftug hrina var á þessum slóðum í febrúar.