MAST rannsakar dráp á fimmtán útigangshrossum í Dýrafirði. Hrossin hafa vakið athygli nærsveitunga þar sem þau hafa að miklu leyti ráðið sér sjálf og hefur verið haft á orði að þau séu villihross.
Svo er þó ekki og þau tilheyra innsta bæ Dýrafjarðar, Lambadal. Einn landeigenda, Sæmundur Guðmundsson, segir að dýrin hafi verið urðuð. Eftir standa tíu hross en veru þeirra í dalnum má rekja til fyrri eiganda búsins.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.