Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að gera sprengjuárásir á Óman, standi stjórnvöld þar í vegi fyrir samkomulagi um opnun Hormússunds.
Forsetinn lét þessi orð falla í viðtali á Fox News í morgun. "Ef Óman þvælist fyrir, þá sprengjum við þá í tætlur," sagði Trump.
Írönsk stjórnvöld greindu frá því í morgun að þau ynnu að lokafrágangi samkomulags við stjórnvöld í Óman um framtíð siglinga um Hormússund. Bandaríkin hafa krafist þess að sundið verði opnað að fullu. Ekki liggur fyrir hvort samkomulagið uppfyllir þær kröfur.
Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í morgun að Íran og Óman hefðu náð samkomulagi. Hann skýrði ekki frekar frá því hvað fælist í samkomulaginu. AP-fréttastofan segir að upplýsingar hafi komið sem bendi til þess að siglingaleið inn í Persaflóa um Hormússund yrði nærri Íransströndum. Siglingaleið úr flóanum yrði nærri Óman. Engin gjöld yrðu innheimt af skipum.
Bandaríkin og Íran undirrituðu viljayfirlýsingu í júní um vopnahlé sem fól meðal annars í sér að endanlegu friðarsamkomulagi yrði náð á sextíu dögum í mesta lagi. Sá frestur rennur út í dag en ekkert bólar á friðarsamkomulaginu.