Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar.
Þar segir einnig að einstaklingur hafi sett sig í samband við lögreglu eftir að hafa verið ógnað með hnífi við strætóskýli en gerandinn var farinn þegar lögregla mætti á vettvang, mögulega í strætó.
Tilkynnt var um þjófnaði í verslun og tveimur matvöruverslunum og þá var einn handtekinn eftir að hafa ítrekað hunsað fyrirmæli lögreglu um að yfirgefa port lögreglustöðvar.
Lögregla var einnig kölluð til vegna ungmenna sem voru sögð vera að anga íbúa á stigagangi og þá kom hún að málum vegna tónlistarhávaða, þar sem húsráðandi var vinsamlegst beðinn um að lækka.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir og handteknir í umferðinni vegna aksturs undir áhrifum. Þá var óskað aðstoðar lögreglu vegna ökumanns rafmagnshlaupahjóls sem hafði ekið utan í tvær bifreiðar. Viðkomandi reyndist ölvaður.