Hlutfall einkabíla sem eingöngu ganga fyrir jarðefnaeldsneyti hefur lækkað hratt í Danmörku á síðustu árum, þeir eru núna rétt tæpur helmingur en hlutfallið var 65 prósent árið 2020.
DR greinir frá og vitnar í fréttatilkynningu frá Mobility Denmark, hagsmunasamtökum bílgreinarinnar í landinu. Hybrid- og blendingsbílar eru ekki taldir með í samantekt samtakanna þótt þeir séu að hluta knúnir jarðefnaeldsneyti.
Bensín er enn algengasti orkugjafi danskra fjölskyldubíla en æ fleiri kaupa rafbíla sem eru orðnir rúm 24 prósent flotans. Mobility Denmark segir fjölgun rafmagnsbíla helst mega rekja til ívilnana yfirvalda sem geri þá fjárhagslega hagstæða fyrir bílkaupendur.