Hjörtur Guðnason er fallinn frá

Hjörtur Guðnason, grafískur miðlari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar, lést á líknardeild Landspítalans 10. júní síðastliðinn, á 76. aldursári.
Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Hjörtur fæddist 16. ágúst 1950 og lauk námi í offsetljósmyndun, litgreiningu og plötugerð frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann starfaði um áratugaskeið við prent- og grafíska miðlun, meðal annars hjá Prentmyndastofunni, Iceland Review og Ísafoldarprentsmiðju.
Á árunum 1996 til 2001 gegndi hann starfi framkvæmdastjóra Prenttæknistofnunar og vann jafnframt að menntamálum innan greinarinnar. Hann sinnti fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir prentiðnaðinn, tók þátt í sveinsprófsnefndum og var virkur á vettvangi WorldSkills.
Eftirlifandi eiginkona hans er Guðrún Jóna Valgeirsdóttir. Þau eignuðust fjögur börn.