Það hitnaði í kolunum í Kastljósi þegar núverandi og fyrrverandi formaður Þingvallanefndar tókust á um fyrirhugaða stórtónleika á svæðinu. Tónleikarnir verða haldnir á Jónsmessu þann 26. júní.
Hljómsveitin Kaleo og fleiri tónlistarmenn standa að baki tónleikunum en þeir eru haldnir með sérstöku leyfi Þingvallanefndar. Ekki eru allir á eitt sáttir við að einn helgasti staður þjóðarinnar og sameiningartákn sé lagður undir lokaðan viðburð sem greiða þarf inn á.
Markmiðið að fá fleiri Íslendinga til Þingvalla
Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Vinstri grænna og fyrrverandi formaður Þingvallanefndar, hefur gert athugasemd við ákvörðun nefndarinnar, ekki sé rétt að fá Íslendinga á Þingvöll gegn því að greiða rúmar 20.000 krónur fyrir.
Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins og formaður Þingvallanefndar, segir það vera hlutverk Þingvallanefndar að finna leiðir til þess að fá Íslendinga til þess að sækja þingstaðinn forna. 95% þeirra sem heimsækja Þingvelli eru erlendir ferðamenn. Sigurður segir þá þróun vera slæma, markmiðið sé að fá fleiri innlenda til þess að heimsækja Þingvelli og sömuleiðis efla skólaheimsóknir.
Helgispjöll að rukka slíkar upphæðir fyrir aðgang að Þingvöllum
Álfheiður hefur kallað eftir því að nefndin afturkalli leyfi til tónleikahalda á svæðinu. Hún segir það ekki vera helgispjöll að fólk dansi, dufli og skemmti sér í þjóðgarðinum, hins vegar séu það helgispjöll að rukka skuli rúmar 20.000 krónur aðeins fyrir almennan aðgöngueyri að svæðinu sem verður annars lokað almenningi.
Hluti miðaverðsins mun renna beint til Þingvallanefndar. Sigurður segir að gert sé ráð fyrir um 40 milljónum og að þær eigi að nýta í að efla heimsóknir skólabarna á svæðið m.a. með því að styrkja við þann rútukostnað sem fylgir slíkum heimsóknum.
Hér í spilaranum fyrir neðan má nálgast Kastljós.