Hin látnu á Krýsuvíkurvegi voru fædd á árunum 2005 til 2009

Þrjú ungmenni létust í alvarlegu bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt frétt RÚV.
Hin látnu voru ungur maður fæddur árið 2005 og tvær stúlkur fæddar árin 2007 og 2009. Slysið varð með þeim hætti að bifreiðin sem ungmennin voru í hafnaði utan vegar.
Sömuleiðis er til skoðunar hvort að um hraðaakstur hafi verið að ræða.
Önnur stúlknanna var nemandi í Menntaskólanum við Sund. Kyrrðarstund fór fram á vegum skólans vegna slyssins í Langholtskirkju í gærkvöldi sem um tvö hundruð ungmenni sóttu.
Miklum fjölda blóma auk kerta og krossa hefur verið komið fyrir á slysstaðnum í dag og í gær, til minningar um hin látnu.
Fjölmargir vinklar til skoðunar
Að sögn Sævars er rannsókn málsins á frumstigi og lítið hægt að segja um tildrög slyssins að svo stöddu. Fram undan eru meðal annars yfirheyrslur yfir vitnum.
„Við eigum eftir að ræða við vitni og fá þetta formlega fram en við höfum einhverjar hugmyndir og vitneskju um hvað gerðist,“ segir Sævar í samtali við fjölmiðla.
Aðspurður hvort hraðaakstur hafi valdið slysinu segir Sævar að það sé eitt af því sem verið sé að skoða. Lögreglan rannsaki nú málið vítt og breitt: „Það eru fjölmargir vinklar skoðaðir, það eins og hvað annað.“