Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, óskaði eftir og fékk afhent gögn um notkun borgarstjóra á innkaupakorti frá borginni í janúar. Kortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra hefur verið mikið til umfjöllunar vikunni. Hildur óskaði eftir færsluyfirliti af innkaupakorti borgarstjóra allt þetta kjörtímabil í byrjun árs.
„Þessi orðrómur um kortanotkunina hefur verið á kreiki í marga mánuði og barst mér fyrst til eyrna innan úr Samfylkingunni í miðju prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Mér fannst óábyrgt annað en að kalla eftir færsluyfirlitum og mér bárust þau í lok janúar,“ segir Hildur.
„Það voru alls ekki jafn ítarleg gögn og við höfum verið að sjá síðustu daga. Þar voru engar upplýsingar um að gerðar hafi verið athugasemdir við færslurnar eða að einhverjar þeirra hafi þurft að endurgreiða. Þannig að af þessum upplýsingum sem ég fékk þá var ekkert hægt að segja til um að það hafi verið eitthvað misjafnt á ferðinni svo ég gerði ekkert frekar í málinu.“
„Greinilega eitthvað athugavert“
Heiða hefur notað kortið fyrir 753 þúsund krónur síðan hún tók við embætti í febrúar í fyrra, meðal annars til að greiða reikninga á veitingahúsum og fyrir leigubíla. Starfsfólk á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hefur gert 23 skriflegar athugasemdir við notkun Heiðu Bjargar á kortinu, auk munnlegra athugasemda.
„Upplýsingarnar sem núna hafa komið fram sýna að það var greinilega eitthvað athugavert við færslurnar,“ segir Hildur. „Að eftirlitskerfi borgarinnar hafi gert athugasemdir, að það hafi þurft að endurgreiða einhverjar af færslunum. Ég sá engar kvittanir, þannig að ég sá ekkert hvað bjó að baki færslunum, í hvað var nákvæmlega verið að eyða.“
Heiða Björg segist hafa farið eftir reglum borgarinnar um notkun á kortinu og að athugasemdirnar séu merki um góða stjórnsýslu. Hún er í öðru sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni og Pétur Marteinsson í því fyrsta.
Hann segir Heiðu Björgu hafa svarað fyrir kortanotkunina með fullnægjandi hætti. Hins vegar sé umfjöllunin ekki góð þegar kosningar eru handan við hornið.
Hildur segir Sjálfstæðisflokkinn ekki vilja heyja kosningabaráttu á lágu plani.
„Við viljum bara reka jákvæða baráttu og ég held að næstu dagar eigi frekar að snúast um það sem flokkarnir hafa fram að færa. Það er ekkert gaman að reka baráttu einhvers staðar í drullusvaðinu. Við ætlum bara að vera björt og brosandi.“