Að minnsta kosti sex voru drepnir og 24 til viðbótar særðust í umfangsmikilli flugskeytaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nágrannahéruð í gærkvöld og nótt.
Reuters-fréttaveitan segir vel á annan tug sprenginga hafa kveðið við í miðborginni snemma nætur.
Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir langdrægum eldflaugum hafa verið beint að þremur hverfum Kyiv og hæft íbúðarblokkir, sjúkrahús og fleiri byggingar sem sumar standi enn í ljósum logum. Pólski flugherinn kveðst hafa sent orrustuþotur af stað í nótt til varnar lofthelginni. Pólland er NATÓ-ríki og á landamæri að Úkraínu.