Uppi varð fótur og fit í Danmörku í gær þegar helvítislirfan svokallaða fannst í fyrsta sinn í höfuðborg landsins, nánar tiltekið í Amager Fælled-garðinum. Lirfurnar bera latneska fræðiheitið Thaumetopoea processionea og eru tegund af mölflugulirfum sem leggjast á eikartré.
Danska ríkisútvarpið heldur úti lifandi fréttavakt um nýjustu vendingar málsins, en í morgun setti Kaupmannahafnarborg upp skilti í Amager Fælled þar sem gestir eru varaðir við því að fara nálægt eikartrjánum.
Komist fólk í snertingu við lirfurnar getur það valdið kláða og útbrotum. Andi fólk að sér broddum lirfunnar getur það valdið öndunarerfiðleikum, og jafnvel ofnæmislosti, í allra verstu tilfellum.
Meðal þess sem sagt hefur verið frá í fréttavakt DR í morgun er að fulltrúar Danske Folkeparti í Kolding vilja að plöntun eikartrjáa verði alfarið hætt til að koma í veg fyrir útbreiðslu lirfunnar.
Danir kalla lirfuna helst helvítislirfuna eða „egeprocessionsspinderen“. Hún fannst fyrst í Danmörku í Óðinsvéum á Fjóni í fyrra og hefur dreift úr sér á Fjóni. Hún hefur einnig fundist í Morsø á Norðvestur-Jótlandi, og nú í Kaupmannahöfn.