Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hefur staðfest synjun ónefnds tryggingafélags á kröfu um bætur úr ábyrgðartryggingu ónefndrar hestaleigu. Var bótanna krafist eftir að foreldrar og þrjú börn þeirra slösuðust öll í hestaferð á vegum leigunnar. Var krafan ekki síst byggð á því að sá starfsmaður leigunnar sem var leiðsögumaður fjölskyldunnar í ferðinni hafi aðeins verið 15 ára gamall.
Heil fjölskylda slasaðist í hestaferð undir leiðsögn unglings