Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar gaf til kynna á fundi byggðaráðs sveitarfélagsins í gær að hann hefði áhyggjur af því að kjörsókn í sveitarfélaginu verði lítil í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Rekur hann það helst til þess að engir framboðslistar bárust og því verður óhlutbundin kosning í Langanesbyggð en það er einnig kallað óbundin kosning, þ.e.a.s. megnið af fullorðnum íbúum sveitarfélagsins verða þá í framboði.
Þetta var meðal þess sem Björn reifaði í reglulegri skýrslu sinni á fundi byggðaráðs.
Hann minnti á að þetta þýði að allir íbúar sem hafi kosningarétt séu í kjöri. Í kosningalögum þar sem fjallað sé um kjör fulltrúa í óbundnum kosningum komi fram að uppfylltum skilyrðum geti íbúar skorast undan kjöri. Þessi skilyrði séu þau að ef viðkomandi hafi náð 65 ára aldri og sé ekki heilsuhraustur eða að hafa setið í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur. Frestur til að tilkynna að viðkomandi skorist undan kjöri sé sá sami og frestur til að lýsa yfir framboði með því að leggja fram lista. Fresturinn hafi runnið út 10. apríl síðastliðinn.
Áhrif
Björn sagði tvo fulltrúa sem setið hafa í sveitarstjórn á þessu kjörtímabili hafa sent erindi til yfirkjörstjórnar um undanþágu frá endurkjöri áður en fresturinn rann út en það séu Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir og Gunnlaugur Steinarsson. Önnur erindi hafi borist eftir að frestur til að skorast undan kjöri rann út. Kynningarfundur um fyrirkomulag kosninga verði haldinn miðvikudaginn 6. maí kl. 16 á veitingahúsinu Holtinu. Þar geti kjósendur kynnt sér fyrirkomulagið og ennfremur geti þeir sem ekki sendu inn beiðni um að skorast undan kjöri fyrir tilskilinn frest tilkynnt fundarmönnum það. Svo geti einstaklingar lýst því yfir á þeim fundi eða hvar sem er að þeir sækist eftir því að vera kjörnir í sveitarstjórn.
Björn sagði því næst:
„Þátttaka í óbundnum kosningum hefur því miður verið lítil að því að sagan kennir okkur, en ég skora á íbúa að mæta á kjörstað og rita nöfn þeirra sem þeir vilja að skipi næstu sveitarstjórn. Störf sveitarstjórnar koma okkur öllum við og þau geta haft og hafa mikil áhrif á framtíð sveitarfélagsins.“
Björn virðist því bersýnilega hafa áhyggjur af því að kjörsókn muni verða verri í Langanesbyggð þar sem kosningarnar verða óhlutbundnar og engir framboðslistar í boði. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum voru tveir framboðslistar í boði í Langanesbyggð og kjörsókn var 81,3 prósent en kjörsókn á landsvísu var 62,8 prósent.