Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif - DV

/home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 225
/" alt="Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif - DV" class="single-image">

Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands, birti í vikunni áhugaverða færslu á Facebook þar sem hann veltir upp nokkrum punktum til umhugsunar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu.

Hann lýsir vonbrigðum sínum með það hve umræðan um ESB er „sundurlaus og á köflum yfirdrifin.“ Hann skrifar að vinur hans hafi nýlega spurt hann hvers vegna það heyrðist svona lítið í þeim sem væru fylgjendur aðildarumræðunni Andstæðingarnir væru hins vegar mjög áberandi og virtust hengja sig í algjör smáatriði og ná þannig að drepa innihaldsríkri umræðu á dreif.

Við nánari umhugsun sá ég að hann hafði lög að mæla. Ég nefni þar til dæmis orðalag þeirrar spurningar sem lögð verður fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst nk. Það er beinlínis hamast gegn framsetningu hennar. Að vandlega athuguðu máli er ég þeirrar skoðunar að hún geti tæpast verið orðuð á neinn annan hátt. Þess vegna fannst mér Landskjörstjórn vera komin út á hálan ís, svo ekki sé meira sagt, með yfirlýsingu sinni sem ég mat svo að væri pólitískt inngrip í þessa umræðu alla.“

Sigurður Gylfi vitnar í nýlega pistla Davíðs Þórs Björgvinssonar og Þorsteins Pálssonar á DV þar sem þeir gagnrýna pólitísk afskipti landskjörstjórnar af þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna harðlega og bætir við: „Auk þess er ekki nokkur vafi á um hvað er spurt og þyrfti einbeittan brotavilja til að láta það vefjast fyrir sér.“

Hann tekur sérstaklega fram að hann sé ekki búinn að gera upp hug sinn til aðildar að ESB en í ágúst muni hann segja já við því að aðildarviðræðum verði haldið áfram.

Ég vil jafnframt taka fram að hamagangurinn í þeim sem eru á móti inngöngunni í ESB hefur gert mig heldur jákvæðari í garð aðild Íslands að bandalaginu.“

Sigurður Gylfi rifjar upp hrunið 2008 og aðdraganda þess, m.a. orð Ólafs Ragnars Grímssonar sem dásamaði „útrás“ íslenskra athafnamanna og gekk svo langt að halda því fram í skrifum sínum að bandarískir og breskir viðskiptaskólar eins og Harvard og Oxford þyrftu að endurskoða kennslumódel sín og læra af „strákunum okkar.“

Í þessu sambandi verður mér oft hugsað til þess þegar ljósmyndari Morgunblaðsins náði frægri ljósmynd af framsóknarmönnunum Ólafi Ólafssyni og Finni Ingólfssyni í fína jeppanum sínum þar sem báðir voru brosmildir í meira lagi vegna þess að búið var að afhenda þeim heilan banka! Í þeirra hlut kom Búnaðarbankinn, hann kom nefnilega í hlut Framsóknarmanna en Sjálfstæðismenn fengu úthlutað Landsbankanum eins og frægt er orðið. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson sem þá réðu ríkjum á Íslandi komu sér saman um þetta. Síðar meir kom í ljós að hvorugur þessara aðila borguðu fyrir góssið ef marka má Rannsóknarskýrslu Alþingis, en það er nú önnur saga. Já, þarna kom sér vissulega vel að „boðleiðirnar“ voru stuttar! Hlutirnir gerast svo hratt hjá okkur, laus við evrópskt reglufargan.“

Margir líka við færsluna og kommentin eru mjög jákvæð. Með færslunni er myndin umrædda af Ólafi Ólafssyni og Finni Ingólfssyni.

Hægt er að skoða færslu Sigurðar Gylfa hér:

#andstæðingar #aðildar #háskólaprófessor #innihaldsríkri #smáatriði


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/4/30/haskolaprofessor-andstaedingar-adildar-hengja-sig-algjor-smaatridi-drepa-innihaldsrikri-umraedu-dreif/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260