Rússlandsher gerði í nótt harðar árásir á orkuinnviði í Úkraínu. Síðustu ár hefur herinn gert árásir á orkumannvirki með þeim afleiðingum að fjöldi Úkraínumanna hefur verið án hita og rafmagns í vetrarkulda.
Forsætisráðherra Úkraínu, Serhii Koretskyi, segir í færslu á Telegram að varla hafi komið sá dagur síðan í sumar að Rússar hafi ekki gert árásir á orkuinnviði. „En svona harðar árásir eins og núna höfum við ekki séð síðan síðasta vetur.“
Rafmagnslaust var í sumum hverfum Kyiv og víðar eftir árásirnar, greinir úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent frá. Rússlandsher drap hið minnsta þrjá og særði sjö í Kyiv og nágrenni í árásum í nótt.