Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Vestfjörðum en þar segir að í húsi sem viðkomandi var í hafi fundist umfangsmikil kannabisræktun. Hald hafi verið lagt á mikinn fjölda kannabisplantna og umfangsmikinn ræktunarbúnað.
Lögreglan á Vestfjörðum fari með rannsókn málsins en njóti við framkvæmd þess aðstoðar lögreglunnar á Vesturlandi og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.