Tilkynnt var um líkamsárás við verslun og þjófnað og eignaspjöll í herbergi. Nokkrir ökumenn voru kærðir ýmist fyrir að aka sviptir ökurétti, að nota farsíma við akstur og fyrir að virða ekki rétt gangandi á gangbraut. Einn var handtekinn fyrir að keyra á 101 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraði var sextíu en sá var einnig í símanum við akstur.
Einn var handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og vopnaburð á almannafæri. Þá var maður handtekinn fyrir ólöglega sölu áfengis.