Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann á skemmtistað í miðbænum sem lamið hafði gesti með stól. Nokkur erill var hjá lögreglunni en annar var handtekinn vegna líkamsárásar á öðrum skemmtistað í miðbænum í nótt.
Á Seltjarnarnesi voru húsráðendur kærðir fyrir mikinn hávaða frá partíi í heimahúsi. Lögregla þurfti ítrekað að fara og hafa afskipti af fólkinu og það beðið um að minnka hávaðann.
Í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem þjónar Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi veitti lögregla ökumanni eftirför. Hann reyndist undir áhrifum fíkniefna og á hann von á kæru fyrir ýmis umferðarlagabrot eftir eftirförina. Farþegi sem var í bílnum var einnig handtekinn og vistaður í fangaklefa fyrir að hafa veist að lögreglu.
Annað samkvæmi endaði með aðkomu lögreglu í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Kópavogi og Breiðholti en þar var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna gestkomandi manns sem neitaði að fara út.