Leikkonan Halle Berry er sökuð um að hafa beitt son sinn, hinn 12 ára gamla Maceo, líkamlegu ofbeldi. Þetta kemur fram í dómsgögnum sem Page Six hefur undir höndum. Þar fer Olivier Martinez, fyrrverandi eiginmaður Berry fram á tímabundið nálgunarbann gegn leikkonunni. Í gögnunum segir að Berry hafi ráðist á son þeirra 26. september síðastliðinn og tekið hann hálstaki.
Halle Berry sökuð um að taka son sinn hálstaki