Hann telur að aukin skattheimta á fjármálafyrirtæki muni bitna á almenningi og kjörum heimilanna. Hann reiknar með enn frekari kólnun á húsnæðismarkaði vegna þessa.
Við ræðum einnig við Ástu Hafþórsdóttur, gervahönnuð og förðunarfræðing, sem varð vitni að hákarlaárás á strönd við Sydney-borg í Ástralíu.
Við tökum einnig stöðuna á Bárðarbungu sem skalf verulega í nótt en stærsti skjálftinn á svæðinu mældist fyrir ofan fjóra að styrkleika.
Í sportinu ræðum við árangur New York Knicks sem urðu í nótt NBA-meistarar í fyrsta skipti í fimmtíu og þrjú ár eftir sigur gegn San Antonio Spurs. Þetta og fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar.