Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að stefnt sé að því að leggja mannréttindaráð borgarinnar niður og færa verkefni þess undir önnur verkefni . Þetta kom fram á fundi borgarstjórnar í dag.
Borgarfulltrúar Miðflokksins lögðu fram tillögu um að ráðið yrði lagt niður á fundinum.
Tillagan var ekki afgreidd, en fulltrúar meirihlutans samþykktu að vísa henni til nýs hagræðingarhóps sem Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, leiðir.
Hildur staðfesti að stefnt væri að því að leggja ráðið niður, sem og Mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Hún sagði að vanda þyrfti til verka og til dæmis komast að niðurstöðu um það hvar í borgarkerfinu lögbundin verkefni ættu best heima.
Lögbundin verkefni ráðsins og Mannréttindaskrifstofunnar tengjast meðal annars aðgengismálum og málefnum eldri borgara.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, lýsti andstöðu sinni við áformin.
„Mér finnst það segja ýmislegt um viðhorf fólks til þessa málaflokks. Mér finnst við vera að smætta veruleika fólks niður í tölur sem eiga að passa inn í eitthvert Excel-skjal,“ sagði Sanna.
Þegar hafa verið gerðar breytingar á ráðum borgarinnar frá því nýr meirihluti tók við völdum.
Þrjú ný ráð voru sett á fót: leikskóla- og daggæsluráð, menningarráð og öldungaráð. Þá var stafrænt ráð borgarinnar lagt niður.
Mannréttindaráð fer með verkefni sem tengjast jafnréttismálum, ofbeldisvörnum, málefnum eldra fólks, fatlaðs fólks og innflytjenda, samkvæmt því sem segir á heimasíðu borgarinnar.
Í kosningabaráttunni nefndu margir frambjóðendur, einkum úr Miðflokki og Sjálfstæðisflokki, ráðið sem dæmi um óþarft skrifræði í borgarkerfinu og lögðu til að ráðið yrði lagt niður en lögbundin verkefni þess færð til annarra ráða.