Athugun Samkeppniseftirlirlitsins vegna tímabundinnar lækkunar á virðisaukaskatti á eldsneyti, sem rann út á miðnætti er ekki lokið.
Ríkisstjórnin ákvað að lækka skattinn í vor til að draga úr verðbólgu eftiur að heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Samkeppniseftirlitinu var falið að fylgjast með því að lækkunin kæmi fram í verði til neytenda.
Páll Gunnar Pálsson forstjóri segir að enn eigi eftir að vinna úr gögnum fyrir ágústmánuð og vinna úr svörum olíufélaganna við spurningum eftirlitsins. Niðurstöður ættu að liggja fyrir í haust.
Búum á fákeppnismarkaði
„Eftir stendur auðvitað að við búum við fákeppnismarkaði sem við þurfum að fylgjast mjög vel með og ég reikna með að við tökum samtal við stjórnvöld og hagsmunaaðila seinna í haust um hvaða leiðir eru til ráða til þess að efla samkeppni á þessum markaði.“
Hann segir aðeins einn birgja sjá íslensku fyrirtækjunum fyrir eldsneyti. Skoða þurfi hvort það sé hægt að örva samkeppni úr þeirri átti og þátt stjórnvalda.
Lækkunin skilaði sér í meginatriðum til neytenda
En út frá þeim gögnum sem þið hafið þegar rýnt, skilaði þessi lækkun sér til neytenda?
„Já, í meginatriðum gerði hún það eins og við lýstum í umræðuskjali í sumar. En við settum líka fram nokkrar spurningar og við erum að vinna úr svörum olíufélaganna og þurfum að skoða þau betur áður en við getum gert það algjörlega upp og komist að endanlegri niðurstöðu.“
Páll segir að auk verkefnisins sem ríkisstjórnin fól Samkeppniseftirlitinu sinni það einnig almennu eftirliti með samkeppni.
Núna þegar þessu tímabili er lokið munum við auðvitað hafa auga með því hvernig álagning eldsneytisfyrirtækjanna þróast og setja fram sjónarmið eftir atvikum hvað það varðar.
Nánar var fjallað um eldsneytismarkaðinn í Þetta helst á Rás 1. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan.